Innlent

Kristbjörn sigraði í sparakstri

Sparaksturskeppni. Kristbjörn Hauksson sigurvegari var kampakátur að lokinni keppni.
Sparaksturskeppni. Kristbjörn Hauksson sigurvegari var kampakátur að lokinni keppni.

Hátt í fimmtíu bifreiðar voru skráðar til leiks í keppni í sparakstri sem fram fór í gær. Keppendur voru bæði almennir ökumenn sem og fulltrúar bifreiðaumboða og voru ökutækin allt frá smábílum til fjórhjóladrifinna ökutækja. FÍB og Atlantsolía stóðu að keppninni en eknir voru rúmir 140 kílómetrar.

Sigurvegari keppninnar var Kristbjörn Hauksson sem náði þeim góða árangri að nota aðeins 3.03 lítra af díselolíu á hverja hundrað ekna kílómetra. Kristbjörn ók Benz 180 cdi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×