Viðskipti innlent

Kauphöll Íslands og OMX einu skrefi nær samruna

Frá Kauphöll OMX í Kaupmannahöfn Skráð félög í Kauphöll Íslands munu hefja þátttöku á norrænum lista OMX hinn 1. janúar 2007.
Frá Kauphöll OMX í Kaupmannahöfn Skráð félög í Kauphöll Íslands munu hefja þátttöku á norrænum lista OMX hinn 1. janúar 2007.

Formleg undirritun samkomulags um kaup OMX á Kauphöll Íslands fór fram í gær. Umsvif OMX aukast og jókst hagnaður félagsins um þrettán prósent milli ársfjórðunga.

Eignarhaldsfélagið Verðbréfaþing ehf., eigandi Kauphallar Íslands, og OMX skrifuðu í gær undir samning um að Kauphöllin gangi til liðs við OMX Nordic Exchange. Skrifað var undir viljayfirlýsingu þess efnis fyrir um mánuði síðan. Nú hefur verið gengið frá öllum aðalatriðum samningsins og munu viðskiptin endanlega ganga í gegn í lok nóvember. Stefnt er að því að hinn 1. janúar 2007 verði svo skráð félög í Kauphöll Íslands hluti af Norræna listanum.

Hluthafar í EV munu fá 2.067.560 hluti í OMX í skiptum fyrir hlut sinn. Er það 1,7 prósent af heildarfjölda útistandandi bréfa í OMX. Það jafngildir um 2.500 milljónum íslenskra króna. Þar að auki mun OMX greiða í peningum fyrir handbært fé og verðbréf í eigu EV. Helga Björk Eiríksdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Kauphallar Íslands, segir að ekki hafi endanlega verið tekin ákvörðun um hve há sú upphæð verður en hún verði á bilinu 500 og 600 milljónir króna.

OMX hefur unnið að því að samþætta rekstur kauphallanna á Norðurlöndunum að undanförnu og jukust umsvif félagsins, sem meðal annars rekur kauphallirnar í Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku, Eistlandi, Litháen og Lettlandi, töluvert á þriðja ársfjórðungi. Auk samningsins um kaupin á Kauphöll Íslands keypti félagið nýverið tíu prósenta hlut í kauphöllinni í Ósló. Eftir kaup OMX á Kauphöll Íslands verður sú kauphöll sú eina á Norðurlöndunum sem er ekki í meirihlutaeigu OMX. Hagnaður OMX félagsins jókst um þrettán prósent milli fjórðunga og nam á þriðja ársfjórðungi 18,46 milljónum króna. Það jafngildir um 1,58 milljörðum íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×