Innlent

Þorgerður Katrín sækist eftir 1. sætinu

MYND/GVA
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar næsta vor. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Árni Mathiesen fjármálaráðherra, sem var oddviti lista sjálfstæðismanna í kjördæminu fyrir síðustu kosningar, tilkynnti í gær að hann hygðist færa sig um set og bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista flokksins í suðurkjördæmi fyrir kosningarnar á næsta ári. Þorgerður Katrín var í fjórða sæti listans í Suðvesturkjördæmi fyrir kosningarnar árið 2003.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×