Innlent

Stal þurrkgrind og sængurverum

Rétt tæplega fimmtug kona var dæmd í sextíu daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag fyrir gripdeild. Konan hafði í júní á þessu ári farið inn í verslun Rúmfatalagersins og tekið ófrjálsri hendi barnakerru, tvo barnaramma, tvö sængurverasett, þurrkgrind og svefnpoka. Hún gekkst greiðlega við broti sínu.

Konan hafði áður hlotið fjóra dóma fyrir þjófnað á síðustu tveimur árum og braut skilyrði reynslulausnar með athæfi sínu nú. Þá hefur hún einnig tvívegis rofið skilorð með stuttu millibili og því þótti ekki fært að skilorðsbinda refsingu hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×