Bíó og sjónvarp

Beðmálin í bíó

Þær Carrie, Samantha, Miranda og Charlotte gætu verið á leiðinni í bíó.
Þær Carrie, Samantha, Miranda og Charlotte gætu verið á leiðinni í bíó.

Samkvæmt US OK! bendir allt til þess að búin verði til kvikmyndaútgáfa af hinum vinsæla þætti Sex and The City sem var svo hagalega þýddur Beðmál í borginni og sýndur á RÚV.

Tímaritið greinir frá því að náðst hafi samkomulag við leikkonurnar Söruh Jessicu Parker, Kristin Davis, Kim Katrall og Cynthiu Nixon um að snúa aftur í hlutverk sín fyrir hvíta tjaldið en blaðið hefur eftir heimildarmanni sínum að vissulega sé mikið verk eftir óunnið. „En ef það tekst að landa þessu yrðu það mikil gleðitíðindi fyrir aðdáendur þáttaraðinnar.“ Sex & The City eru meðal vinsælustu þátta sem gerðir hafa verið fyrir sjónvarp en síðasta þáttaröðin fór í loftið árið 2004.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.