Skoðun

Hvar verður þú í kvöld?

Í dag 6. nóvember, ganga fermingarbörn í hús og safna til hjálparstarfs á vegum kirkjunnar sinnar. Vertu klár, ekki bara með budduna ef þú átt aur - heldur líka hvatningu. Það er ekki oft sem krakkar fá tækifæri til að hjálpa svo um muni.

Þeim er frekar legið á hálsi fyrir að hugsa bara um sig - en unglingsárin eru jú umbrotatími á líkama og sál. En taktu undir með þeim þegar þau banka upp á hjá þér - hvort sem er með framlagi eða hvatningu.

Fermingarbörnin hafa fengið fræðslu um örbirgð í þróunarlöndum og vítahring fátæktar. Þau hafa séð hvernig peningar frá Íslendingum skilað sér í hjálparstarfi kirkjunnar: Í brunnum, áveitum, skepnuhaldi og fiskiræktartjörnum sem gerir afkomuna öruggari og fæðuna fjölbreyttari - líka í menntun og mannréttindum fyrir fátækt fók sem gerir allt til að sjá sér farborða. Allt árið er unnið úr fjármunum sem fólk treystir Hjálparstarfi kirkjunnar fyrir. Meira á www.help.is

Eru unglingar latir og sjálfhverfir? Reynsla undanfarinna ára hefur ekki sýnt okkur þá hlið. Prestar í 66 sóknum um allt land sýna 3400 fermingarbörnum myndir frá hjálparstarfi kirkjunnar Afríku. Þeir fræða börnin um ábyrgð kristinna manna á velferð náunga síns. Og það kemur í ljós að þau hafa ríka réttlætiskennd. Og þau vilja gera eitthvað í málunum. Í dag skipta þau með sér götum í hverfinu sínu. Þau fara út um hálf sex leytið þegar flestir eru komnir heim úr vinnu, með merkta og innsiglaða bauka.

Á eftir sitja þau lengi og skiptast á sögum: „Einn setti 5000-kall í!", „ég sá svo ógeðslega sætan hund í einu húsinu!", og sumir áttu ekki pening... og þá gefst tími til að ræða það. Það hafa það ekki allir gott á Íslandi og það eru svo margar ástæður fyrir því. Þess vegna styður Hjálparstarf kirkjunnar fjölda Íslendinga líka - sérstaklega um jólin.

Ég hvet þig til að taka vel á móti fermingarbörnum sem koma til þín.

Hvettu þau til dáða, því vinna þeirra skiptir miklu máli. Ef það sem safnaðist í söfnun fermingarbarna í fyrra, 6,8 milljónir króna, er umreiknað miðað við kostnað við einn brunn sem þjónað getur 1000 manns, þá fengu 56.000 manns aðgang að hreinu vatni til frambúðar. Hoppaðu á vagninn, þú gerir heilmikið gagn með því sem þú réttir yfir þröskuldinn.

Höfundur er fræðslu- og upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar.




Skoðun

Sjá meira


×