Menning

Aðfangadagur tungunnar

Steinar Bragi skáld Les á aðfangakvöldi tungunnar á Sólon.
Steinar Bragi skáld Les á aðfangakvöldi tungunnar á Sólon.

Í kvöld verður upplestrarhátíð Bjarts á Kaffi Sólon í Bankastræti. Þær Bjartsfreyjur segja hátíðina bera upp á aðfangadag íslenskrar tungu, en á morgun verður afmælisdagur Jónasar haldinn hátíðlegur. Hefst hátíðahaldið í kvöld kl. 20.30, stundvíslega.

Þar mun Eiríkur Guðmundsson lesa upp úr bókinni Undir himninum, Sigurjón Magnússon upp úr Gaddavír, Steinar Bragi upp úr Hinu stórfenglega leyndarmáli heimsins og sérlegur fulltrúi Jökuls Valssonar, sem er fastur í Svíþjóð, lesa upp úr Skuldadögum. Stjarna Bjartur Records Ltd, Magga Stína, syngur nokkur lög eftir Megas og þýðendur lesa upp úr nýútkomnum erlendum skáldsögum: Árni Óskarsson upp úr Laugardegi eftir Ian McEwan, Jón Karl Helgason upp úr Brestir í Brooklyn eftir Paul Auster og Hermann Stefánsson upp úr Ósýnilegum glæpum eftir Argentínumanninn Guillermo Martínes.

Síðast en ekki síst mun Silja Aðalsteinsdóttir lesa upp úr nýrri þýðingu sinni á hinu stórkostlega 160 ára gamla bókmenntaverki Wuthering Heigths eftir Emily Bronte. Bóksalar verða staddir á hátíðinni og bjóða gestum sérstök kjör í tilefni dagsins. Í tilkynningu forlagsins segir: „Er hátíð þessi í senn haldin til þess að fagna glæsilegri útgáfu Bjarts síðustu vikurnar og degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, sem ber upp daginn eftir. Á aðfangadag opnar maður pakkana og er sæll á jólunum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.