Innlent

Áramótaskaup truflar Alþingi

Þingfundur truflaðist og lét þingvörður sussa á Reyni Lyngdal leikstjóra og hans fólk úti á Austurvelli á þriðjudagskvöldið. Upptökur stóðu yfir á áramótaskaupinu og hafði hópurinn fengið leyfi lögreglunnar til starfans.

Það er hins vegar ekki starfsvenja kvikmyndatökumanna að biðja leyfis í hverju húsi og því datt engum í hug að bera þetta undir hið háa Alþingi.

Þingheimi líkaði ekki háreysti í hópatriði einu. Tökulið brást vel við kvörtuninni og skömmu síðar var fundur settur á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×