Innlent

Úrsagnir úr flokknum

Flokksbundnir sjálfstæðismenn hafa sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum eftir að Árni Johnsen hlaut kosningu í annað sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi í nýafstöðnu prófkjöri. Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins hefur staðfest þetta. Morgunblaðið greindi frá þessu í gær.

Ekki náðist í Andra Óttarson, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, vegna málsins þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Árni Johnsen vildi ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið hafði samband við hann í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×