Skoðun

Markviss kynning á íslenskri tónlist á erlendis.

Samtónn, samstarfvettvangur tónlistarrétthafa, lét í októbermánuði síðastliðnum vinna þarfagreiningu meðal íslenskra tónlistarmanna, fulltrúa helstu fyrirtækja og hagsmunasamtaka. Niðurstöður leiddu m.a í ljós að íslensk tónlist eigi mikla möguleika á frekari útrás ef réttur stuðningsvettvangur væri skapaður.

Þessi stuðningvettvangur er nú orðinn að veruleika og með stofnun Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar. Með henni er stefnt að því að vinna bug á þeim annmörkum sem hingað til hafa verið til staðar í útrás íslenskrar tónlistar og byggja upp öfluga skrifstofu með tilstyrk þriggja ráðuneyta og Landsbanka Íslands. Ráðuneyti þessi eru utanríkisráðuneytið, menntamálaráðuneytið og iðnaðarráðuneytið.

Samtónn hefur um nokkurt skeið beitt sé fyrir stofnun skrifstofunnar og verið í mjög góðu samstarfi við Útflutningsráð um kynningu tónlistar á Midem í Frakklandi, einni stærstu tónlistarráðstefnu í heimi.

Með stofnun skrifstofunnar var stór skref stigið í framfaraátt í útrás íslenskrar tónlistar. Með tilkomu hennar mun unnt að kynna enn frekar á erlendum mörkuðum þá fjölbreytni sem er til staðar í íslensku tónlistarlifi.

Fylgt er eftir þeirri athygli sem íslensk tónlist og tónlistarmenn hafa á síðustu árum vakið utan landssteinana. Íslenskum tónskáldum og hljómlistarmönnum er ennfremur gefin aukin tækifæri til að ná athygli fleiri á mun stærri mörkuðum og skapa sér með því lifibrauð af listgrein sinni. Á sama hátt er þetta gert til að hljómplötuframleiðendur geti á öflugari hátt sótt á nýja markaði utan Íslands.

Rétt er að þakka utanríkisráðherra Valgerði Sverrisdóttur, menntamálaráðherra Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og iðnaðarráðherra Jóni Sigurðssyni fyrir stuðning þeirra og ráðuneyta þeirra, sem gerði stofnun þessarar skrifstofu að veruleika. Það er til algjörrar fyrirmyndar að ráðuneyti komi sameiginlega sem ein heild að stuðningi verkefnis sem þessa. Markmið Samtóns er með sama hætti að sameina alla rétthafahópa í einni breiðfylkingu til að styrkja grundvöll til að ná betri árangri í sameiginlegum verkefnum sem í þessu tilviki er útrás íslenskrar tónlistar.

Jafnframt er stuðningur einkageirans með framlagi Landsbanka Íslands þakkarverður og til fyrirmyndar. Vonandi er brautin rudd fyrir önnur fyrirtæki að styðja við bakið á íslensku tónlistarlífi, en Landsbanki Íslands hefur margoft sýnt velvilja sinn í garð ýmissa verkefna á sviði tónlistar í landinu.

Það er mín skoðun að bæði tónlistarfólk og almenningur í landinu meti fjárframlög sem þessi og allir ofangreindir stuðningsaðilar muni njóti ávaxtana af þessum framlögum á einn eða annan hátt í framtíðinni.



Með stofnun skrifstofunnar var stór skref stigið í framfaraátt í útrás íslenskrar tónlistar. Með tilkomu hennar mun unnt að kynna enn frekar á erlendum mörkuðum þá fjölbreytni sem er til staðar í íslensku tónlistarlifi.




Skoðun

Sjá meira


×