Tónlist

Raggi Bjarna á jólaplötu Brooklyn Fæv

Aðalsteinn Jón Bergdal, Davíð Þ. Olgeirsson, Karl Sigurðsson, Kristbjörn Helgason og Viktor Már Bjarnason, ásamt gestasöngvaranum Ragga Bjarna.
Aðalsteinn Jón Bergdal, Davíð Þ. Olgeirsson, Karl Sigurðsson, Kristbjörn Helgason og Viktor Már Bjarnason, ásamt gestasöngvaranum Ragga Bjarna.

Fyrsta plata hljómsveitarinnar Brooklyn Fæv, Góð jól, er komin út. Á plötunni eru þekktir jólasmellir sem Brooklyn Fæv gera að sínum með rödduðum söng án undirleiks. Íslenskir textar hafa verið gerðir við nokkur af eldri lögunum og á Bragi Valdimar Skúlason heiðurinn af þeim.

Brooklyn Fæv sló fyrst í gegn árið 1998 þegar hún vann Söngvakeppni framhaldsskólanna. Sama ár kom út jólalagið Sleðasöngurinn. Fyrir tveimur árum kom síðan út annað jólalag, Einmana á jólanótt.

Bæði þessi lög eru á plötunni auk níu laga til viðbótar, þar á meðal Góða ósk um gleðilega hátíð. Er það íslensk útgáfa af laginu Have Yourself a Merry Little Christmas og er enginn annar en Raggi Bjarna gestasöngvari.

„Hann er mesti töffari Íslandssögunnar held ég,“ segir Davíð Olgeirsson, einn af fimm meðlimum Brooklyn Fæv. „Þegar við vorum að æfa í sumar komumst við fljótlega að því að það væri bara einn maður á Íslandi sem gæti sungið Have Yourself a Merry Little Christmas. Ég held líka að þetta sé fyrsta lagið sem hann syngur án undirleiks,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×