Tónlist

Hlið hugleiðslunnar

Einar Jóhannesson klarinettuleikar að störfum. Verk Atla Heimis var samið fyrir hann sérstaklega og gerir ítrustu kröfur til flytjanda.
Einar Jóhannesson klarinettuleikar að störfum. Verk Atla Heimis var samið fyrir hann sérstaklega og gerir ítrustu kröfur til flytjanda.

Andakt tónlistar er flestum kunn, hljómarnir í kórnum, söngur í kirkjunni. Vaxandi geiri í vestrænni tónlist dregur dám af helgi tónlistar í ýmsum öðrum trúarbrögðum og hvarflar síðan aftur í forna kirkjulega tónlist Evrópu.

Þetta er hugleiðslutónlistin svokallaða; tónlist sem samin er til íhugunar og hugleiðslu, sem hefur það erindi að beina vanstilltum huga nútímamannsins inn á erfiða einstigu upp á hátinda friðar og ró.

Atli Heimir Sveinsson samdi fyrir nokkru einleiksverk fyrir Einar Jóhannesson klarinettuleikara við texta Davíðssálms: Þér hlið/lyftið höfðum yðar.

Atla kallar verkið hugleiðsluverk og kemur hreint til dyranna: „Tónlistin getur í besta falli vakið trúarkennd í brjórtum okkar, gert okkur móttækilegri fyrir guðdóminum.“ það er erindi verksins og tilgangur.

Þeir Atli og Einar eru báðir kaþólskir og Einar hefur lýst nýlega í afbragðsgóðum viðtalsþætti við Jónas Sen á Ríkissjónvarpinu hvernig leit leiddi hann víða í frið klaustra Evrópu, hugleiðslu og trú.

Hann sagði þar að hinn mystiski keimur kaþólskunnar hafi heillað sig.

Atli segir verk sitt mikla þolraun fyrir spilarann. það er enda býsna langt fyrir einleiksverk: 74 mínútur. Það er nú komið á disk á forlagi Smekkleysu. Upptakan var gerð í Kristskirkju í Landakoti af Hreini Valdimarssyni.

Það er viðburður þegar verk Atla Heimis komast á hljóðrit sem aðgengilegt er almenningi: þessi diskur gerir fyrirfram kröfur til hlustanda, njótanda bværi nær að segja því hughrif af verkinu ýta mönnum í stillur og krefjast af þeim andaktar sem rennur þeim í brjóst og þeir eiga þess kost að gefa sig á vald.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.