Tónlist

Sorglegasta lagið

Ashcroft og fyrrum félagar hans í The Verve eiga sorglegasta lagið samkvæmt nýrri rannsókn.
Ashcroft og fyrrum félagar hans í The Verve eiga sorglegasta lagið samkvæmt nýrri rannsókn.

Samkvæm,t nýrri rannsókn er lag hljómsveitarinnar The Verve, The Drugs Don"t Work, líklegast til að kalla fram tár hjá fólki.

Breski prófessorinn Harry Witchel framkvæmdi rannsóknina. Mældi hann hjartslátt fólks, öndun og hitastig húðarinnar á meðan það hlustaði á sorgleg lög af ýmsum toga.

Á meðal annarra laga sem voru ofarlega á lista voru Angels með Robbie Williams og Sorry Seems to be the Hardest Word með Elton John.

Á hinn bóginn var lagið LDN með Lily Allen líklegast til að gera fólk hamingjusamt. Mest hressandi lagið var Song 2 með Blur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×