Tónlist

Sungið á aðventu

Kammerkórinn Vox Academica. Flytja Bach og Händel á aðventutónleikum sínum.
Kammerkórinn Vox Academica. Flytja Bach og Händel á aðventutónleikum sínum.

Kammerkórinn Vox academica fagnaði tíu ára afmæli sínu í haust sem leið og af því tilefni verða árlegir aðventutónleikar kórsins með sérstökum hátíðablæ. Á tónleikum annað kvöld mun kórinn flytja verkin Magnificat eftir Johann Sebastian Bach og Messías eftir George Friedrich Händel.

Bæði verkin eru nátengd aðventunni og jólunum, enda lýsa þau boðun fæðingar frelsarans og tjá fagnaðarboðskap jólahátíðarinnar í sterku og margslungnu tónmáli þessara meistara barrokksins. Messías er mikið og langt verk en á tónleikunum verða fluttir þeir þættir verksins sem tengjast beint boðskap jólanna sjálfra, auk hins þekkta Hallelúja-þáttar. Magnificat Bachs verður flutt í heild sinni.

Flytjendur ásamt kórnum verða sópransöngkonurnar Hallveig Rúnarsdóttir og Lilja Eggertsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir alt, Þorbjörn Rúnarsson tenór og Ágúst Ólafsson bassasöngvari. Stjórnandi og stofnandi Vox academica er Hákon Leifsson.

Miða á tónleikana má nálgast í verslununum 12 Tónum við Skólavörðustíg og Tónastöðinni að Skipholti 50d og hjá kórfélögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×