Tónlist

Hátíðlegir jólatónar í Hafnarfirði

Flensborgarskóla Árlegir jólatónleikar í sal skólans á morgun.
Flensborgarskóla Árlegir jólatónleikar í sal skólans á morgun.

Kór Flensborgarskólans heldur hátíðartónleika sína í hinum nýja og glæsilega sal Flensborgarskólans, Hamarssal á morgun kl. 16. Sérstakir gestir tónleikanna verða söngvarinn Páll Óskar og hörpuleikarinn Monika Abendroth. Stjórnandi er Hrafnhildur Blomsterberg.

Flutt verður hátíðardagskrá, gömul og ný jóla- og aðventulög í vönduðum flutningi áttatíu manna ungmennakórs og tvíeykisins Páls Óskars og Moniku.

Boðið verður upp á frítt kaffi og meðlæti í hléi. Miðaverð er kr. 1.500 og er forsala þeirra hafin á Súfistanum og hjá kórfélögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×