Tónlist

Sakar Green Day um lagastuld

Noel Gallagher leiðist ekki að rífa smá kjaft.
Noel Gallagher leiðist ekki að rífa smá kjaft.

Gítarleikarinn Noel Gallagher úr hljómsveitinni Oasis sakar bandarísku hljómsveitina Green Day um að stela lagi Oasis, Wonderwall. Noel sagði í nýlegu viðtali að ef hlustað væri á lagið Boulevard og Broken Dreams gaumgæfilega þá heyrðist greinilega að hljómaganginum og uppbyggingunni hefði verið stolið úr Wonderwall.

„Ef þeir hefðu haft vott af sómakennd í sér hefðu þeir beðið eftir því að ég hrykki upp af,“ segir Noel sem er þekktur fyrir að rífa svolítinn kjaft. „Svo halda þeir að þeir séu harðir rokkarar, það er bull, þeir gætu ekki verið harðir þótt þeir reyndu það,“ bætti Noel við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×