Tónlist

Dansvæn nostalgía

Curver og Kiki-Ow spila lög frá tíunda áratugnum á Nasa á gamlárskvöld.
Curver og Kiki-Ow spila lög frá tíunda áratugnum á Nasa á gamlárskvöld.

DJ Curver og DJ Kiki-Ow halda 90’s partí á gamlárskvöld á skemmtistaðnum Nasa. 90’s kvöldin þeirra á Bar 11 hafa notið mikilla vinsælda þar sem hin ýmsu lög frá tíunda áratugnum hafa verið spiluð. Á meðal þeirra eru No Limits með 2Unlimited, It"d My Life með Dr. Alban, Out of Space með Prodigy og Informer með Snow.

„Við höfum verið að halda þessi kvöld á tveggja mánaða fresti frá því í sumar. Við vildum klára þetta með skemmtilegu partíi,“ segir Curver. „Við vildum hafa þetta mjög einfalt og erum bara að spila þessi frábæru 90"s lög. Það er mikil nostalgía í þessu og þetta er líka dansvænt.

Við spilum þessa teknótónlist, hip hop, rave og popp, bara allan skalann og blöndum þessu saman í einn skemmtilegan graut,“ segir hann.

„Þetta verður hörkupartí og erlendir aðilar ætla líka að koma og tékka á þessu. Það hafa verið mikið í gangi í Bretlandi og Þýskalandi þessi nostalgíu partí en þau eru samt aðeins meira á þessu rave-“leveli“ þar.“

Forsala aðgöngumiða í partíið fer fram á nasa.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.