Tónlist

Fimm stjörnu útgáfutónleikar

Forgotten lores fagna vel heppnaðri plötu í kvöld í Þjóðleikhúskjallaranum.
Forgotten lores fagna vel heppnaðri plötu í kvöld í Þjóðleikhúskjallaranum.

Í kvöld mun hiphop-hljómsveitin Forgotten Lores halda upp á útgáfu annarrar plötu sinnar, Frá heimsenda, með útgáfutónleikum í Þjóðleikhúskjallaranum. Gleðskapurinn byrjar kl. 22.00 og munu Earmax og DJ Magic sjá um að koma mannskapnum í stuð, áður en kónarnir í Forgotten Lores stíga á svið.

Glöggir minnast þess jafnvel að undanfarin tvö ár hafa FL-liðar efnt til jóla- og nýárstónleika í Þjóðleikhúskjallaranum, við góðar undirtektir þeirra sem mætt hafa. Plata Forgotten Lores, Frá heimsenda, hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda en platan fékk fimm stjörnur hjá gagnrýnanda Fréttablaðsins sem og Morgunblaðsins.

Síðasta plata sveitarinnar, Týndi hlekkurinn, kom út árið 2003 en síðan þá hefur sveitin getið sér góðs orðs fyrir líflega framkomu á tónleikum. Miða er hægt að nálgast á www.midi.is, í verslunum Skífunnar á kr. 900 og einnig verða miðar seldir við innganginn á þúsund krónur stykkið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×