Innlent

Óbreytt í efstu sætunum hjá Framsókn í borginni

MYND/Vilhelm

Nú rétt í þessu var verið að tilkynna hverjir skipa fjögur efstu sætin á framboðslista Framsóknarflokksins fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, skipar fyrsta sætið. Í öðru sæti er Óskar Bergsson, þriðja sætið skipar Marsibil Sæmundsdóttir og í því fjórða er Ásrún Kristjánsdóttir. Fimm vikur eru frá því prófkjör flokksins fór fram þar sem Björn Ingi lenti í fyrsta sæti og Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi í öðru sæti. Hún stefndi að fyrsta sætinu og sagði sig skömmu síðar af listanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×