Erlent

Hættu við árás

MYND/AP

Ísraelsher hætti við loftárás á hús í Jabalya-flóttamannabúðunum á Gaza-svæðinu í morgun. Mörg hundruð Palestínumenn höfðu slegið skjaldborg um húsið.

Íbúi í húsinu sagði í samtali við BBC að Ísraelar hefðu hvatt hann til að yfirgefa hús sitt vegna yfirvofandi árásar. Það ætlaði hann ekki að gera og hljóp þess í stað í nálæga mosku og bað nágranna sína um að hjálpa sér að verja húsið. Það gerðu þeir og fjölgaði hratt í hópnum.

Maðurinn sem býr í húsinu mun vera ráðandi í herskáum hóp Palestínumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×