Á reki í Kyrrahafinu 17. ágúst 2006 19:57
Þrír mexíkóskir fiskimenn hröktust um Kyrrahafið á lítilli skektu í ellefu mánuði áður en þeim var bjargað við Marshall-eyjar í síðustu viku, tæpa níu þúsund kílómetra í burtu frá heimahöfn þeirra. Það var í októberbyrjun á síðasta ári sem fimm fiskimenn frá smábænum San Blas í Mexíkó héldu í róður sem varð örlítið lengri en í upphafi stóð til. Fljótlega eftir að þeir voru komnir á miðin bilaði vélin í níu metra löngum bát þeirra og hrifsaði kröftugur austanvindurinn þá með sér langt út á þetta stærsta úthaf jarðar. Tveir reyndu að synda til lands en drukknuðu á leiðinni. Næstu ellefu mánuðina velktust þeir þrír sem eftir voru um Kyrrahafið þar til túnfiskveiðiskip tók þá um borð við Marshalleyjar, tæpa níu þúsund kílómetra í burtu. Bátsverjarnir drógu fram lífið á regnvatni og hráum fiski á meðan en stundum liðu allt upp í tvær vikur á milli þess sem þeir fengu mat. Þeir voru því að vonum býsna svangir þegar þeim var bjargað en að öðru leyti vel á sig komnir enda var um borð Biblía sem veitti þeim andlega næringu. Búist er við að mennirnir snúi aftur til heimabæjar síns eftir tvær vikur.
Erlent Fréttir Mest lesið Fjöldi látinn eftir flugslys í Suður-Kóreu Erlent Hvorugur kannaðist við að hafa verið að keyra bílinn Innlent Neyðarástand í Nuuk vegna straumleysis Erlent Kórmenn fastir um allan fjörð og uppseldum tónleikum frestað Innlent „Allt tal um baktjaldamakk er tóm þvæla“ Innlent Forstjóri sjúkrahúss meðal 240 handtekinna Erlent „Mér liggur við að segja að það eigi að fara að afgreina fólk“ Innlent Fleira en veðrið sem mæli með umdeildum hugmyndum um frestun Innlent Olivia Hussey er látin Erlent „Sá sem býður lökustu kjörin á landinu fær augljóslega ekki starfsmann“ Innlent Fleiri fréttir Olivia Hussey er látin Neyðarástand í Nuuk vegna straumleysis Fjöldi látinn eftir flugslys í Suður-Kóreu Forstjóri sjúkrahúss meðal 240 handtekinna Minnst fimmtán áfrýja í máli Pelicot Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Íslandsvinurinn OG Maco látinn Tveir látnir eftir skotbardaga í Noregi „Svarta ekkjan“ fannst látin Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Barn meðal látinna í rútuslysi Þýska sambandsþingið leyst upp Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn Ákæra líka starfandi forseta til embættismissis Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu fjórtán ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Sjá meira