Innlent

Viðvörun til Íslendinga

Vegna ástandsins sem skapast hefur í Ísrael, Líbanon og á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna áréttar utanríkisráðuneytið mikilvægi þess að þeir Íslendingar sem þurfa að ferðast til þessara svæða á næstunni sýni fyllstu aðgát, fylgist með þróun mála og láti vita af ferðum sínum.

Mörg ríki hafa þegar gefið út sérstakar viðvaranir til þegna sinna vegna ferðalaga til þessara svæða. Ráðuneytið mun fylgjast grannt með þróun mála og veita frekari upplýsingar ef tilefni er til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×