Sport

Framlengt í Cardiff

Leikmenn West Ham voru í góðri stöðu þangað til Steven Gerrard kom Liverpool til bjargar enn eina ferðina
Leikmenn West Ham voru í góðri stöðu þangað til Steven Gerrard kom Liverpool til bjargar enn eina ferðina NordicPhotos/GettyImages
Úrslitaleikurinn í enska bikarnum í dag er að verða ansi sögulegur, en grípa þarf til framlengingar eftir að staðan að loknum venjulegum leiktíma er 3-3. Lengst af leit út fyrir að West Ham færi með sigur af hólmi í leiknum, en Steven Gerrard var enn og aftur hetja þeirra rauðklæddu þegar hann skoraði stórglæsilegt mark með viðstöðulausu skoti af 30 metra færi undir lokin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×