Skoðun

Ómarktækur umhverfisráðherra

Yfirlýsingar Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra í fjölmiðlum, vegna þess að Íslendingar hefja nú atvinnuhvalveiðar á nýjan leik eru fádæma klaufalegar og lýsa botnlausri hræsni. Það er fyrir neðan allar hellur að ráðherra í ríkisstjórn Íslands skuli láta svona lagað frá sér fara rétt eftir að heimsbyggðinni hefur verið tilkynnt að einhugur ríki í sömu ríkisstjórn um að hefja atvinnuhvalveiðar á nýjan leik eftir um tuttugu ára hlé.

Ráðherrann kemur hér í bakið á ríkisstjórninni og öllum þeim sem vilja hefja hvalveiðar á nýjan leik. Þannig opnar hún óþarfa tækifæri fyrir andstæðinga hvalveiða og grefur undan þjóðarhagsmunum og góðum málstað Íslands út á við. Ráðherrann virðist ekki hafa þorað að skýra frá efasemdum sínum við ríkisstjórnina þegar málið var rætt þar og ákvörðun tekin. Ráðherrann lét sig svo vanta á Alþingi þegar umræður um ummæli hennar fóru fram í upphafi þingfundar í liðinni viku, þrátt fyrir að hafa verið látin vita af því hvað til stæði með góðum fyrirvara. Hér fer ráðherra sem þykist vilja tala um ímynd Íslands í umhverfismálum, en gerir það helst ekki nema á eintali við fréttamenn.

Þessi sami ráðherra greiddi virkjanaframkvæmdum á Austurlandi atkvæði sitt þegjandi og möglunarlaust þann 8. apríl árið 2002, og hefur aldrei síðan að ég best veit gagnrýnt þær framkvæmdir. Þarna var farið út í mestu náttúruspjöll Íslandssögunnar. Óafturkræfar framkvæmdir sem vakið hafa heimsathygli og sætt mikilli gagnrýni og deilum sem klofið hafa þjóðina. Nú kýs þessi ráðherra og alþingismaður að reyna að slá sig til riddara með því að ráðast á hvalveiðarnar og segir í viðtali við RÚV að hún telji að þetta geti skaðað ímynd Íslands út á við í alþjóðasamfélaginu, ímynd okkar í umhverfislegu tilliti.

Heyr á endemi! Hvað segir frúin þá um framkvæmdirnar sem hún studdi við Kárahnjúka?

Hvalveiðarnar eru sjálfbær og mjög varfærnisleg nýting úr endurnýjanlegum dýrastofnum, og skaða ekki náttúruna á neinn hátt. Þær eru ekki óafturkræf náttúruspjöll eins og virkjanaframkvæmdirnar sem Jónína Bjartmarz og félagar hennar í Framsókn eru svo hrifin af. Nei, Jónína Bjartmarz ætti að segja af sér sem ráðherra fyrst hún er svona óánægð með fullkomlega löglega ákvörðun ríkisstjórnarinnar og Alþingis. Um leið ætti hún að harma framkvæmdirnar við Kárahnjúka og biðja þjóðina fyrirgefningar fyrir að hafa gefið samþykki sitt fyrir þeim sem fulltrúi á löggjafarþingi þjóðarinnar. Fyrr en þetta gerist, þá tek ég ekkert mark á henni varðandi afstöðu hennar til hvalveiða.

Höfundur er alþingismaður Frjálslynda flokksins.




Skoðun

Sjá meira


×