Viðskipti erlent

Virði hlutar BAE í Airbus rýr

Líkan af A380 risaþotu frá Airbus
Líkan af A380 risaþotu frá Airbus Mynd/AFP
Fjárfestingarbankinn Rothschild metur 20 prósenta hlut breska hergagnaframleiðandans BAE Systems í flugvélaframleiðandanum Airbus á 2,75 milljarða evrur, jafnvirði 268,.5 milljarða íslenskra króna. BAE Systems hafði vonast til að mat hlutarins yrði tvöfalt hærra.

Gengi hlutabréfa í Airbus hefur lækkað mikið vegna framleiðslutafa á A380 risaþotunum, sem verða þær stærstu í heimi. Tvívegis hefur verið tilkynnt um tafir á framleiðslu þotanna og hafa nokkur stór flugfélög, m.a. Singapore Airlines, snúið sér til annarra flugvélaframleiðenda með viðskipti sín.

Nokkur vandræðamál hafa komið upp hjá Airbus vegna þessara tafa en Noel Forgeard, yfirforstjóri EADS, móðurfélags Airbus, hefur vikið úr starfi. Lengi vel var þrýst á að hann gerði það en hann sætti ákúru vegna ætlaðra innherjasvika með sölu á hlutabréfum í Airbus. Forgeard hefur ætíð neitað að hafa haft nokkra vitnesku um tafir á framleiðslu A380 risaþota þegar hann og fjölskylda hans seldu hluti sína í félaginu í mars á þessu ári. Þegar tilkynnt var um tafirnar í apríl féll gengi hlutabréfa í Airbus um 26 prósent.

BAE Systems ætla að íhuga sölu á hlut sínum í Airbus og hafa ráðlagt hluthöfum fyrirtækisins að leggjast undir feld áður en þeir ákveða að selja hluti sína á þessu verði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×