Innlent

Svifdrekamaður slasaðist alvarlega í Borgarfirði

Svifdrekamaður liggur á gjörgæsludeild Landspítalans eftir slys sem varð við Svignaskarð í Borgarfirði í gær. Eftir því sem fram kemur á vef Skessuhorns brotlenti svifdreki mannsins eftir að vindhviða feykti honum á skurðbakka af miklu afli og slasaðist maðurinn illa. Hann var fluttur til Reykjavíkur þar sem hann gekkst undir skurðaðgerð í nótt en hann liggur nú á gjörgæslu sem fyrr segir og er líðan hans er eftir atvikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×