Erlent

Búið að opna minnismerkið á ný

Lögregla í Washington hefur aftur opnað minnismerkið um Lincoln og svæðið í kring eftir að því var lokað í dag vegna ótta um að hættuleg efni eða sprengjur væru þar. Við leit og efnagreiningu kom í ljós að ekki var um hættulegt efni að ræða.

Efnið fannst á baðherbergi við minnismerkið og var það einhver konar vökvi. Á umbúðunum voru miðar sem á stóð "Vitið þið hvað anthrax er?" og "Vitið þið hvað sprengja er?" en sem betur reyndist ekki vera hætta á ferðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×