Innlent

Hekla, Katla og Grímsvötn búa sig undir gos

Þrjár virkustu eldstöðvar Íslands, Hekla, Katla og Grímsvötn, eru allar að búa sig undir gos um þessar mundir. Bárðarbunga sýnir sömuleiðis grunsamleg merki.

Síðasta eldgos hérlendis var í Grímsvötnum fyrir tæplega tveimur árum. Ekki er víst að bíða þurfi lengi eftir næsta gosi. Fram kom í fréttum okkar í fyrradag að Hekla er orðin tilbúin að gjósa. Þrýstingur í kvikuhólfi undir fjallinu er orðinn nægilegur til að kvikan geti brotist upp á yfirborð. Í hádegisviðtalinu á NFS við Pál Einarsson prófessor kom fram að vísindamenn sjá einnig skýr merki kvikusöfnunar undir tveimur öðrum eldfjöllum, nefnilega Kötlu og Grímsvötnum.

Og enn ein eldstöðin sýnir grunsamleg merki um þessar mundir, en það er Bárðarbunga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×