Tónlist

Kraftur í doktornum

Fáklæddir rokkararþ Meðlimir Dr. Spock töldu það ekki eftir sér að fækka fötum þegar leið að lokum tónleika þeirra í Kaupmannahöfn. Frá vinstri eru Franz, Tobbi, Addi, Óttarr og Guðni.
Fáklæddir rokkararþ Meðlimir Dr. Spock töldu það ekki eftir sér að fækka fötum þegar leið að lokum tónleika þeirra í Kaupmannahöfn. Frá vinstri eru Franz, Tobbi, Addi, Óttarr og Guðni. MYND/KS

Hljómsveitin Dr. Spock verður ekki sökuð um að hafa slegið slöku við á tónleikum sínum í Kaupmannahöfn á föstudag. Krafturinn sem býr í bandinu flæddi óbeislaður út úr hátölurunum og dundi á eyrum tónleikagesta.

Fjölmenni var á staðnum og stemningin fyrir framan sviðið var mikil. Sérstaklega undir lokin þegar liðsmenn hljómsveitarinnar voru orðnir klæðalitlir og flestir áhorfendur komnir í bleika uppþvottahanska sem söngvararnir hentu út í skarann. Íslenska hljómsveitin Croisztans sá um upphitunina og gerði það vel og því fengu tónleikagestir mikið fyrir dönsku krónurnar sínar í þetta skiptið.

Óttarr Proppé vakti að vonum athygli á sviðinu í bleikum buxum og ber að ofan.


.
Söngvararnir Óttarr og Finni gáfu allt sitt í tónleikana.
.
Lára Rúnarsdóttir tónlistarkona, til hægri, kom til að styðja sinn mann, trommuleikarann Arnar Þór Gíslason.


.
Tónlist Dr. Spock virtist falla Dönum vel í geð.


.
Með á nótunum Sumir stigu léttan dans í áhorfendaskaranum.


.
Sérprentuðum hönskum frá tónleikum hljómsveitarinnar á Airwaves var dreift til áhorfenda.


.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×