Tónlist

Fyrsta platan í 33 ár

Iggy Pop forsprakki The Stooges gefur út nýja plötu með félögum sínum á næsta ári.
Iggy Pop forsprakki The Stooges gefur út nýja plötu með félögum sínum á næsta ári. MYND/Getty

Hljómsveitin fornfræga, The Stooges, ætlar að gefa út sína fyrstu plötu í 33 ár, þann 20. mars á næsta ári. Mun hún fylgja henni eftir með tónleikaferð um heiminn.

Nýja platan nefnist The Weirdness og er Steve Albini upptökustjóri. Hann á m.a. að baki plötuna In Utero með Nirvana og Surfer Rose með Pixies.

Síðasta plata The Stooges, Raw Power, kom út árið 1973 þegar forsprakkinn Iggy Pop var djúpt sokkinn í heróínfíkn sína. Með hjálp David Bowie hóf hann vel heppnaðan sólóferil um miðjan áratuginn og gaf út lög á borð við Lust for Life og The Passenger.

The Stooges héldu í sína fyrstu tónleikaferð í þrjátíu ár á síðasta ári. Meðal annars heimsóttu þeir félagar Ísland og héldu tónleika í Hafnarhúsinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×