Innlent

Handteknir eftir að hafa kveikt í flugeldaafgöngum

Þrír piltar á aldrinum níu til ellefu ára voru handteknir í Reykjavík í nótt eftir að þeir höfðu gert bálköst úr flugeldaafgögnum og kveikt í. Lögreglumenn slökktu eldinn og óku piltunum heim til þeirra, þar sem foreldrar þeirra voru látnir vita af tiltækinu. Ekkert tjón hlaust af. Nokkurt ónæði var af skoteldum á höfuðborgarsvæðinu fram á nótt og bárust all nokkrar kvartanir vegna þess






Fleiri fréttir

Sjá meira


×