Erlent

7 tonn af grasi

Jurtin forboðna Mexíkóskir eiturlyfjahringar smygla sífellt meira af kannabisefnum til Bandaríkjanna.
Jurtin forboðna Mexíkóskir eiturlyfjahringar smygla sífellt meira af kannabisefnum til Bandaríkjanna. MYND/afp

Mexíkóskir hermenn fundu á þriðjudag nærri sjö tonn af marijúana í tankbíl við landamæri Bandaríkjanna. Bíllinn var stöðvaður við venjubundið eftirlit á þjóðvegi.

Yfirvöld segja að mexíkóskir eiturlyfjahringir reyni í auknum mæli að smygla marijúana til Bandaríkjanna, en eftirspurn eftir kókaíni í Bandaríkjunum hefur minnkað vegna aukinnar innlendrar framleiðslu á amfetamíni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×