Innlent

330 milljónir til byggingar reiðhalla

MYND/Hari
Landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað 330 milljónum króna í styrki til að byggja reiðhallir, reiðskemmur og reiðskála víða um land. Nefnd á vegum landbúnaðarráðherra sá um að úthluta styrkjunum en alls barst fjörutíu og ein umsókn en úthlutað var styrkjum til byggingar 28 reiðhúsa víðs vegar um landið. Hæstu styrkina hljóta Hestamannafélagið Léttir, alls 29 milljónir króna til byggingar reiðhallar á Akureyri, og Hestamannafélagið Geysir, sem fær 26 milljónir til byggingar reiðhallar á Gaddstaðaflötum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×