Erlent

8 týndu lífi í bruna í Síberíu

MYND/AP

Að minnsta kosti 8 týndu lífi og 6 brenndust illa þegar eldur kviknaði á geðsjúkrahúsi í Síberíu í Rússlandi í gærkvöldi. Rúmlega 200 manns voru í byggingunni þegar eldurinn kviknaði.

Þetta gerðist aðeins tæpum sólahring eftir að 45 konur týndu lífi í bruna í sjúkrahúsi í höfuðborginni Moskvu. Talið er að kveikt hafi verið þar í.

Eldur kviknaði einnig í heilsuhæli í bænum Tver, norður af Moskvu, seint í gær. Engan sakaði í þeim eldsvoða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×