Sport

Borgvardt með 4 mörk í 7 leikjum

Danski knattspyrnumaðurinn Allan Borgvardt sem sló í gegn tvö tímabil með Íslandsmeisturum FH, er nú að gera góða hluti með norska 1. deildarliðinu Bryne. Borgvardt skoraði sigurmark liðsins með skalla á 87. mínútu í 1-2 útisigri á Haugesund í gærkvöldi. Auk þess fiskaði hann vítaspyrnu sem félagi hans skoraði úr snemma í leiknum og kom Bryne yfir, 0-1.

Borgvardt hefur nú skorað 4 mörk í sjö leikjum fyrir Bryne sem er í 3. sæti deildarinnar með 15 stig, sex stigum á eftir toppliði Álasunds. Borgvardt hefur skorað þremur mörkum færri en markahæsti leikmaður deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×