Handbolti

HK kærði aftur

Egidijus Petkevicius
Egidijus Petkevicius

Kæru HK vegna félagaskipta markvarðarins Egidijusar Petkeviciusar úr Fram í HK var vísað frá í gær vegna formgalla en HK-menn stóðu ekki nógu vel að kærunni. Þeir létu það ekki stöðva sig heldur lögðu inn nýja kæru vegna málsins í gær.

Forsaga málsins er sú að Petkevicius taldi sig lausan allra mála hjá Fram, þar sem félagið var búið að kveðja hann og þakka honum fyrir samstarfið. Hann samdi því við HK en þegar til kastanna kom neitaði Fram að sleppa markverðinum nema gegn greiðslu sem á að vera hálf milljón króna að því er Petkevicius heldur fram. Niðurstaða ætti að fást í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×