Erlent

Hermaður ákærður fyrir 13 morð

Mynd af vettvangi glæpsins.
Mynd af vettvangi glæpsins. MYND/AP

Bandarískur hermaður hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt 13 óvopnaða óbreytta borgara í borginni Haditha í Írak en lögfræðingar hans skýrðu frá þessu í dag.

Sögðu þeir þó að hann hefði ekki verið kærður fyrir morð að yfirlögðu ráði og að þyngsti mögulegi dómur yrði lífstíðarfangelsi. Búist er við því að herinn eigi eftir að rannsaka þátt annarra hermanna sem voru á svæðinu þegar atburðurinn átti sér stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×