Innlent

Styrkir uppgröft á Hólum

Uppgröftur á Hólum
Uppgröftur á Hólum

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur ákveðið að styrkja uppgröft á Hólum í Hjaltadal næstu þrjú árin. Uppgröftur hefur staðið yfir á Hólum í sumar, en þetta er fimmta sumarið sem grafið er þar. Uppgröfturinn hefur fram til þessa verið unnin með styrk frá Kristnihátíðarsjóði.

Það er mikil viðukenning á okkar rannsóknum að sveitar­félagið ákveður að koma að uppgreftrinum, segir Ragnheiður Traustadóttir, stjórnandi Hólarannsóknarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×