Innlent

Ökumaður stöðvaður í fjórða skipti á mánuði

MYND/Róbert Reynisson

Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í gær ökumann vegna hraðaksturs og var þetta í fjórða sinn á hálfum mánuði , sem hann er stöðvaður fyrir slíkt og í sjötta skipti á árinu. Sektir hans í ár nema samtals 170 þúsund krónum. Þá er hann búinn að fá ellefu punkta í ökuferilsskránna , en við næsta punkt missir hann ökuréttindi í þrjá mánuði.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×