Erlent

Evrópusambandið setur Tyrkjum úrslitakosti

Istanbúl
Istanbúl MYND/AP

Evrópusambandið hefur gefið Tyrkjum frest fram í miðjan desember til þess að opna hafnir sínar fyrir skipum frá Kýpur, eða taka þeim afleiðingum sem áframhaldandi hafnbann hefði á aðildarumsókn landsins.

Evrópusambandið segir að Tyrkir verði einnig að bæta tjáningarfrelsi, verja réttindi kvenna og minnihlutahópa og draga úr völdum hersins.

Bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra Tyrklands sögðu í dag að Tyrkir myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að verða við kröfum sambandsins.

Kýpur sé hinsvegar pólitískt mál, sem eigi að halda utan við aðildarviðræðurnar, og leysa á öðrum vettvangi.

Forsætisráðherrann sagði einnig  að það myndi ekki valda Tyrkjum neinni geðshræringu þótt leiðtogar Evrópusambandsins tækju ákvörðun um að hægja á aðildarviðræðunum, á fundinum sem haldinn verður í Brussel, í desember.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×