Viðskipti erlent

Þróunarsjóður kaupir í EADS

við þotu frá airbus Michael Glos, fjármálaráðherra Þýskalands, vill að Þjóðverjar auki við hlut sinn í EADS, móðurfélagi flugvélaframleiðandans Airbus. Hann segir eignarhlut KfW verða í eigu þróunarsjóðsins í stuttan tíma.
við þotu frá airbus Michael Glos, fjármálaráðherra Þýskalands, vill að Þjóðverjar auki við hlut sinn í EADS, móðurfélagi flugvélaframleiðandans Airbus. Hann segir eignarhlut KfW verða í eigu þróunarsjóðsins í stuttan tíma. MYND/AFP

Þýski þróunarsjóðurinn KfW, sem hér á landi er einna þekktastur fyrir útgáfu á svokölluðum Jöklabréfum sem hefur áhrif á gengi krónunnar, er sagður hafa hug á að kaupa rúman 7,5 prósenta hlut í EADS, móðurfélagi flugvélaframleiðandans Airbus. Seljandi bréfanna er þýski bifreiðaframleiðandinn DaimlerChrysler sem á 22,5 prósent bréfa í EADS. Kaupverð nemur um 130 milljörðum íslenskra króna.

Viðskipti með bréf í EADS eru næstum fullfrágengin en þróunarsjóðurinn mun aðeins halda í bréfin þar til annar þýskur fjárfestir lýsir yfir áhuga á því að kaupa þau.

Talsverður áhugi er á bréfum í EADS í Þýskalandi. Þýska vikuritið Der Spiegel segir 16 ríki þar í landi vilja sneið af kökunni og hefur eftir borgarstjóra Hamborgar í Þýskalandi um síðustu helgi að borgaryfirvöld hefðu sömuleiðis áhuga á að kaupa hlut í EADS.

Þá segir blaðið að tilgangurinn með því að halda bréfunum í þýskum höndum sé sá að mögulega verði hægt að koma í veg fyrir að Airbus segi upp starfsfólki sínu í Þýskalandi.

Gengi bréfa í EADS hafa fallið um þriðjung á árinu í kjölfar þess að tilkynnt var um tafir á afhendingu A380 risaþotna frá flugvélaframleiðandanum Airbus, nú síðast undir lok september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×