Tónlist

Sjáumst aftur

Kór Glerárkirkju hefur sent frá sér geisladiskinn Sjáumst aftur en á honum flytur kórinn lög úr ýmsum áttum.

Þar má nefna madrígala, íslensk þjóðlög og sönglög, afrísk-ameríska trúartónlist og síðast en ekki síst Misa Criolla, Kreólamessuna, sem Argentínumaðurinn Ariel Ramírez samdi árið 1963 og náði hún strax miklum vinsældum.

Messan byggir á hljómfalli suður-amerískrar tónlistar og sver sig í ætt við þjóðlagatónlist þeirrar heimsálfu, þótt tónlistin sé frumsamin. Textinn er hinn hefðbundni texti klassískrar messu: Kyrie (Miskunnarbæn), Gloria (Dýrðarsöngur), Credo (Trúarjátning), Sanctus (Heilagur) og Agnus Dei (Guðs lamb). Hér er messan flutt með íslenskri þýðingu textans, sem löguð hefur verið að tónlistinni, en það verk annaðist Jón Karl Einarsson.

Kórinn hefur fengið til liðs við sig þá Óskar Pétursson tenórsöngvara og Hauk Steinbergsson bariton en þeir syngja einsöng og tvísöng með kórnum. Einnig nýtur kórinn krafta þeirra Daníels Þorsteinssonar píanóleikara, Kristjáns Edelstein gítarleikara, Péturs Ingólfssonar sem spilar á kontrabassa og slagverkleikaranna Karls Petersen, Valgarðs Óla Ómarssonar og Halldórs G. Haukssonar (Halla Gulla).

Diskurinn var tekinn upp í tilefni af 60 ára afmæli kórsins vorið 2004 og annaðist Halldór Víkingsson það verk og alla hljóðvinnslu á diskinum.

Diskurinn er til sölu í Glerárkirkju á Akureyri og hjá kórfélögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.