Bíó og sjónvarp

Nýtt og betra Tjarnarbíó í bígerð

Gunnar segir breytingarnar, „um það bil næstum því að detta inn“.
Gunnar segir breytingarnar, „um það bil næstum því að detta inn“.

„Þetta er samstarf sjálfstæðu leikhúsanna og alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar, markmiðið er að reka þarna leikhús og bíóhús saman,“ segir Gunnar Gunnsteinsson, framkvæmdastjóri bandalags sjálfstæðra leikhúsa.

Nú stendur til að efla starfsemi Tjarnarbíós, bæta og breyta húsnæðinu á ýmsan hátt. Gera á betri aðstöðu fyrir leikhópa baksviðs, og í skýrslu um framtíðarsýn á húsinu kemur fram að gera eigi það, „tæknilega fullbúið fyrir leik-, dans- og kvikmyndasýningar“.

„Við köllum þetta Masterplan,” segir Gunnar, en ekki er enn búið að fullfjármagna framkvæmdirnar. „Við fengum smá pening frá ríkinu og núna erum við í umræðum við Menningar- og ferðamálaráð.“

Fái áætlunin að ganga eftir má með sanni segja að menningarlíf borgarinnar eflist til muna. Ekki hefur verið rekið grasrótar kvikmyndahús í Reykjavík síðan Fjalarkötturinn var og hét og með tilkomu betri aðstöðu mun gatan fyrir sjálfstæða leikhópa aldrei hafa verið jafn greið. „Þetta er svona um það bil, næstum því að detta inn,“ segir Gunnar að lokum en ekki hefur endanleg ákvörðun verið tekin hjá eiganda hússins, en það er Reykjavíkurborg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.