Innlent

Segja bið eftir lækni of langa

Í könnun sem gerð var meðal fanga á Litla-Hrauni kemur fram að meirihluti þeirra er óánægður með lækna- og tannlæknaþjónustu fangelsisins og allmargir með sálfræðiþjónustuna. Þetta kemur fram í Tímamótum, fréttablaði fanga á Litla-Hrauni. Þar kemur einnig fram að bið eftir viðtali hjá lækni á Litla-Hrauni getur verið nokkrir dagar.

Í könnuninni kom fram að margir fangar töldu framkomu lækna og hjúkrunarfólks oft á tíðum dónalega og niðurlægjandi. Þá óska fangar eftir auknu stöðugildi geðlæknis við fangelsið sem gæti dregið úr geðlyfjanotkun fanga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×