Lífið

Botnleðja skríður undan feldi

Heiðar í Botnleðju Er að klára sólóplötuna sína undir nafni The Viking Giant Show. Innan tíðar fer svo að heyrast aftur frá Botnleðju.
Heiðar í Botnleðju Er að klára sólóplötuna sína undir nafni The Viking Giant Show. Innan tíðar fer svo að heyrast aftur frá Botnleðju.

"Ég býst við að klára plötuna núna í ágúst eða september, ég er bara að leggja lokahönd á hana," segir Heiðar Örn Kristjánsson um væntanlega plötu The Viking Giant Show. Heiðar er sem kunnugt er gítarleikari og söngvari Botnleðju en hann hefur notað pásu sem hljómsveitin hefur verið í til að taka upp sólóplötu. Heiðar segir að öll lögin séu tilbúin, nú eigi bara eftir að smíða nokkra texta og klára upptökur.

"Það kemur svo bara í ljós hvenær platan kemur út, ég er alls ekkert stressaður yfir því," segir Heiðar, sem er ekki búinn að ganga frá samningi við útgefanda.

Nú styttist líka óðum í að Botnleðja fari að láta á sér kræla að nýju. Raggi bassaleikari er snúinn aftur frá Barcelona og drengjunum er því lítið að vanbúnaði. "Okkur langar að fara að gera eitthvað sniðugt, við þurfum bara að finna tíma til að henda í æfingar. Við eigum mikið af lögum sem eru tilbúin svo það er spurning um að byrja," segir Heiðar. Botnleðja hefur jafnan verið með skemmtilegustu íslensku sveitunum á Airwaves-hátíðinni, enda hafa þeir félagar iðulega klætt sig upp í grímubúninga og vakið mikla athygli. Heiðar þvertekur þó fyrir að þeir muni spila á Airwaves í ár. "Við verðum ekki með í ár, en það er aldrei að vita nema grímurnar verði settar upp á næsta ári."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×