Erlent

Brotthvarf japanskra hermanna frá Írak

Flutningur bifreiða frá Samawah á sunnudag
Flutningur bifreiða frá Samawah á sunnudag MYND/AP
Brotthvarf japanskra hermanna frá Írak heldur áfram. Það hófst á sunnudaginn þegar hluti japanska heraflans fór frá Suður-Írak yfir til Kúvæt. Í morgun mátti sjá nokkra vöruflutningabíla flytja búnað yfir landamærin. Sex hundruð japanskir hermenn hafa einungis sinnt hjálparstarfi í borginni Samawah í Suður-Írak síðan 2004. Þeir sinntu vegagerð, byggingu húsa og tóku þátt í að styrkja heilbrigðisþjónustu og hreinsa vatn í borginni. Óttast var um öryggi hermannanna þó friður væri á svæðinu. Enginn japanskur hermaður hefur fallið í Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×