Lífið

Jackson flytur til Evrópu

MYND/AP

Michael Jackson hefur ákveðið að yfirgefa Bahrain og flytja til Evrópu. Söngvarinn ætlar með þessu að koma ferli sínum aftur á skrið. Talskona söngvarans segir að vegna verkefna sem hann hefur tekið að sér sé þægilegra fyrir hann að búa í Evrópu. Jackson mun þó áfram dvelja mikið í Bahrain.

Fleiri atvik benda til þess að Jackson ætli sér stóra sigra í tónlistarheiminum á ný. Nú í maí mætti hann á myndbandaverðlaunahátíð MTV í Japan þar sem hann tók við verðlaunum fyrir framlag sitt til tónlistar. Í ræðu sinni þakkaði hann aðdáendum sínum fyrir að standa með honum í gegnum erfiða tíma.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.