Innlent

Skýrslutökum lýkur senn

Rannsókn yfirvalda á því hvort símar í utanríkisráðuneytinu hafi verið hleraðir eftir 1991, sem stýrt er af Ólafi Þór Haukssyni, er langt komin. Ólafur Þór segir nokkrar skýrslutökur eftir enn þá.

„Við höfum yfirheyrt sjö einstaklinga og vonumst til þess að klára skýrslutökur í næstu viku. Við gætum þurft að boða fleiri í skýrslutökur ef eitthvað nýtt kemur fram,“ segir Ólafur Þór sem varðist frekari frétta af rannsókn málsins. „Við höfum lagt upp með að upplýsa þetta mál hratt og vel til þess að óvissu um þessi mál verði eytt. Rannsóknin hefur hingað til gengið vel.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×