Lífið

Rósaleppaprjón í nýju ljósi

Hér getur að líta hamarrósavesti prjónað með símunstri (endurtekning af sama munstri), unnið upp úr hamarrós á grundvelli leppa í eigu Þjóðminjasafns Íslands.
Hér getur að líta hamarrósavesti prjónað með símunstri (endurtekning af sama munstri), unnið upp úr hamarrós á grundvelli leppa í eigu Þjóðminjasafns Íslands.

Laugardaginn 14. okt. kl. 16:00 verður opnuð sýning á rósaleppaprjóni Hélène Magnússon á Torginu í Þjóðminjasafni Íslands. Hélène hefur rannsakað íleppa sem notaðir voru í sauðskinnsskó og út frá svo kölluðu rósaleppaprjóni hannað eigin prjónamynstur. Rannsóknir og uppskriftir Hélène eru nú að koma út á bók Rósaleppaprjón í nýju ljósi og er sýningin haldin í tilefni af því. Í þessari athyglisverðu bók rekur Hélène sögu hins forna íslenska rósaleppaprjóns og aðferðir við gerð íleppa. Íleppar eða rósaleppar eru prjónuð innlegg sem voru notuð í sauðskinnsskó eða roðsskó til þæginda og skrauts. Bókin heldur til haga gamalli séríslenskri þekkingu sem nánast hefur glatast og gefur hugmyndir um hvernig má hagnýta hana við nútímahönnun. Eru því birtar í bókinni 27 nýstárlegar prjónauppskriftir. Við hönnun á flíkum sem verða til sýnis á Þjóðminjasafninu hefur Hélène leitast við að vera trú upprunalegum litasamsetningum þeirra leppa sem hún hefur valið og gömlu aðferðunum við gerð þeirra. Ílepparnir koma þó fram í hinum nýju flíkum með ýmsum hætti. Í sumum tilvikum hefur hún endurtekið sama munstrið nokkrum sinnum (þ.e. unnið upp úr íleppamunstrinu símunstur). Í öðrum tilvikum hefur hún látið munstrið ráða formi flíkurinnar. Í enn öðrum uppskriftum lætur hún innblásturinn ráða hvernig munstrin raðast.

Hinar fallegu flíkur sem verða til sýnis í Þjóðminjasafninu gleðja augað og er mikill fengur að bókinni fyrir hannyrðakonur og menn.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.