Körfubolti

Gasol spilar ekki úrslitaleikinn

Meiðsli Gasol erum gríðarleg blóðtaka fyrir spænska liðið
Meiðsli Gasol erum gríðarleg blóðtaka fyrir spænska liðið NordicPhotos/GettyImages
Spænski framherjinn Pau Gasol getur ekki spilað úrslitaleikinn á HM með liði Spánverja eftir að í ljós kom að hann er ristarbrotinn. Gasol hefur verið langbesti maður spænska liðsins á leið þess í úrslitaleikinn og er þetta því gríðarleg blóðtaka fyrir liðið. Hann hefur skorað að meðaltali rúm 21 stig og hirt yfir 9 fráköst. Úrslitaleikurinn fer fram á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×